Brúðarkjólar

Natni tekur að sér breytingar á brúðarkjólum.

Kjólarnir geta verið einfaldir og látlausir, eða margfaldir, perlusaumaðir blúndukjólar.

Oft þarf að stytta kjólana, þrengja eða víkka. Stundum þarf að bæta við eða fjarlægja ermar, stytta klauf eða lengja. Hvað sem er, við skoðum það saman.

Natni handles alterations of wedding dresses.

The dresses can be simple and plain, or multiple, beaded lace dresses.

Dresses often need to be shortened, narrowed or widened. Sometimes we add or remove sleeves, shorten the slit or lengthen it. Whatever, we’ll look into it together.

Að stytta brúðarkjól

Brúðarkjólar eru oft mjög síðir, þá er hægt að laga þá að hverjum og einum notanda. Þeir geta verið jafnsíðir eða með slóða. Sumir eru einfaldir, mjög margir tvöfaldir, aðrir eru með allt uppí átta lög sem þarf að stytta. Nauðsynlegt er að taka skóna sem nota á, með í mátun.

Að þrengja, víkka eða gera aðrar breytingar á brúðarkjól.

Brúðarkjólar eru mjög misjafnir í sniðinu. Margir eru rúmir og fara eigandanum mjög vel þannig. Aðrir eru aðsniðnir og þá þarf gjarnan að laga þá að líkamanum. Við mátum og skoðum það saman, þangað til við finnum réttu línurnar. Gott er að taka með í mátun þau undirföt sem nota á undir kjólinn.

Mismunandi efni

Kjólarnir eru margir úr einföldu efni. En svo eru aðrir úr tjulli, blúndu og jafnvel perlusaumaðir. Þá losum við upp blúndu og perlur, færum til, fjarlægjum eða bætum við ef þess þarf.

Years Experience
0 +
Satisfied Clients
0 +
Success Procedures
0 +
Skin Treatments
0 +